Lesbók03.03.02 — Númi Fannsker

Nú hefur Össur Skarpéðinsson loksins verið afhjúpaður! Í kjölfar þess að hann hótaði hátt settum mönnum í Baugi öllu illu með vísan í hugsanleg völd sín í framtíðinni, sáu þeir sem urðu fyrir barðinu á hótunum Össa sig knúna til að birta kjaftæðið í manninum opinberlega. Guð hjálpi okkur öllum ef mathákurinn pattaralegi kemst til raunverulegra valda hér á landi. Maðurinn virðist halda að hann sé nafli alheimsins og svo virðist sem hann trúi því í alvörunni að menn séu reknir úr störfum sínum fyrir það eitt að tengjast honum!! Hver trúir svona bulli? Sérstaklega í ljósi þess að hinn brottrekni varð uppvís að iðnaðarnjósnum, sem teknar voru upp á myndband! Það er alveg ljóst að blessaður maðurinn á ekki aðeins bágt með að hemja matargræðgi sína, heldur einnig skap sitt og ég spyr: Viljum við að þess háttar maður stjórni landinu? Nú hefur Össur komið því svo fyrir með ofsóknaræði sínu að Samfylkingin á sér varla viðreisnar von. Forustusauður "fylkingarinnar" er fullkomlega ótrúverðugur og eina vonin fyrir sameinaða jafnaðarmenn er sú að Ingibjörg Sólrún taki við formennsku í flokknum eftir að hún hefur valtað yfir sjálfstæðismenn í vor.

 
Kaktuz — Saga
 
Kaktuz — Sálmur
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Fannar Númason Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
        1, 2, 3 ... , 180, 181, 182