Dagbók – Kaktuz
Kaktuz

Jćja..loksins er ég kominn til starfa aftur. Plágan er greinilega komin til ađ vera. En á fćtur er ég kominn og nú er nóg ađ gera.....Alltaf sami leiđinda mórallinn hér á kontórnum. Allir í fýlu úti alla....Ég sé ađ ţađ hefur veriđ reynt ađ brjótast inná skrifstofuna mína. Ţar hefur Myglar vafalítiđ veriđ á ferđ, hann hefur alltaf öfundađ mig af útsýninu yfir gamla slippinn....Bókin er samt ennţá hér ţar sem ég skildi viđ hana. Ţeir verđa agndofa ţegar hún kemur út. Loksins mun ég sanna yfirburđi mína hér hjá Baggalútnum.....ţeir hinir hafa alltaf öfundađ mig......og nú munu ţeir svo sannarlega hafa ástćđu til ţess.

Lesbók frá fyrri tíđ

Hveragerđi. Vin í eyđimörkinni. Rós í hnappagati skaparans. Í Hveragerđi hefur frumkvöđlaandinn, sem fyllti brjóst landnámsmannanna, varđveist og fundiđ sér farveg í óţrjótandi sköpun, atorku - menningu.

Saga Hveragerđis er saga hinna miklu sigra; á náttúruöflunum, á takmörkunum mannsandans - á lífinu. Í Hveragerđi lćkna menn gigt međ leđjuböđum. Ţar hafa menn međ hugviti sínu virkjađ jarđvarma og eimorku mannkyninu til framdráttar. Í Hveragerđi hafa fleiri ísar veriđ sleiktir en annarsstađar á byggđu bóli. Í Hveragerđi lifir frjáls hugsun og holdgervist í hugmyndaauđgi og framkvćmdagleđi bćjarins íbúa.

Í Hveragerđi miđju er lóđ. Lóđ sem forđum geymdi eitt merkasta mannvirki Íslandssögunnar - paradís á mörkum hins byggilega heims: Tívolí!
Ég man ţegar ég fór, lítill drengur, međ föđur mínum í Kolkrabbann. Ég man eftirvćntinguna, sćluna hríslast um minn barnlitla kropp og ţá fró sem fólst í munnfylli af sykurfrauđi - bleiku.

En nú hafa Hvergerđingar gert illa í sínar annars óflekkuđu buxur. Ţeir hafa selt sjálfa Tívolílóđina fyrir skitnar 50 milljónir króna. Ţađ er jafnvirđi ţokkalegs húss viđ Ćgissíđu í Reykjavík. Ég skora á yfirvöld í Hveragerđi ađ skila ţessum peningum strax, friđa Tívolílóđina um alla eilífđ og koma ţannig í veg fyrir menningarsögulegt stórslys sem mun hafa skelfileg áhrif á komandi kynslóđir.

Númi Fannsker 5/10/05
Dr. Herbert – Dagbók
 
Myglar – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Spesi – Dagbók
 
Kaktuz – Dagbók
 
Myglar – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Spesi – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Spesi – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Dr. Herbert – Dagbók
 
Spesi – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
        1, 2, 3 ... 44, 45, 46, 47  
Ţjóđbók
Baggalútur er hýstur af alúđ og umhyggju hjá ADVANIA