
Kunningi minn hringdi í mig í gćr og bauđ mér starf viđ fjölmiđlafyrirtćki hér í bć. Ég afţakkađi, enda nóg ađ gera hjá Baggalúti. Ég hef fengiđ sterk viđbrögđ viđ pistli mínum um ungskáldin, ţar sem mörgum ţykir ég gera lítiđ úr listamönnum ţjóđarinnar. Ég gef nú lítiđ fyrir ţađ og stend viđ hvern stafkrók í pistlinum, fyrir vikiđ hefur mér veriđ hótađ brottvikningu úr Bandalagi íslenskra skálda, en ég mun ekki sökkva í ţađ hórdómsfen ađ láta undan slíkum ţrýstingi. Ég hef, máli mínu til stuđnings, ort ljóđ í anda ungskáldastefnunnar:
Ungskáld
Eitt skáld
ungt međ seríósskál á höfđi
meinvarpar kjarna sinnar litlu hugsunar
í glugga.
Í sjálfu sér er mér nokk sama hvađ ţingmenn hafa í laun. Mér ţykir sjálfsagt ađ ţessir trjónukrabbar lýđveldisins hafi viđunandi tekjur ţannig ađ Alţingi skipi hćft fólk og duglegt á hverjum tíma.
Eins ţykir mér gott og vel ađ forsćtisráđherrar fái sómasamleg eftirlaun - ţó heldur vafasamt hljóti ađ teljast ađ verđlauna ţá sérstaklega sem lengst halda sér í stólinn og neita ađ víkja.
Hins vegar - og takiđ nú vel eftir.
Hvers vegna í djúpfrystum og daunillum dauđanum á ađ láta formenn stjórnmálaflokka fá sérstakt 50% álag á ţingfararkaup sitt?
Ég veit ekki til ţess ađ ţađ komi ríkisféhirđi né skattgreiđendum nokkurn skapađan hlut viđ hvort ţingmenn eđa ađrir ríkisstarfsmenn sinni einhverjum félagsstörfum úti í bć!
Á ţá ekki hver annar ríkisstarfsmađur rétt á samsvarandi álagi ef svo heppilega vill til ađ viđkomandi sinni formennsku í björgunarsveitinni Hallbirni - eđa einhverju ámóta?
Og sanniđ ţiđ til. Komist slík dómadags ţvćla í gegnum ţingiđ verđur hver einasti ţingmađur í sérframbođi í nćstu kosningum.