Dagbók – Spesi
Spesi

Enn er heilsan í lagi, að minnsta kosti eins góð og hún verður hjá manni á mínum aldri. Þó er öngvu hægt að lofa eins og ástatt er.

Ég spjallaði Enter í dag í gegnum súrefnistjaldið og virðist hann aðeins vera að skána, í það minnsta nötraði hann ekki eins mikið og fyrir helgi.

Ég hefi orðið var við örlítinn hósta og verk í kálfa, sem bendir til þess að ég geti verið kominn með snert af kóleru. Sjáum til hvernig fer.

Bölvaðir séu Færeyingarnir.

Lesbók frá fyrri tíð

Heyrið mig nú. Hvað er eiginlega með þessa Tjörn?

Á bara að taka því þegjandi og hljóðalaust að besta byggingarland borgarinnar liggi undir vatni?

Fólk er að væla yfir því að einhverjir örfoka melar uppi á heiðum séu á leiðinni undir vatn og svo liggur þessi daunilli drullupollur fyrir fótum manns alla daga, engum til ánægju nema brauðbelgdum vargfugli.

Þarna mætti nú aldeilis byggja eitthvað skemmtilegt. Tívolí til dæmis, bílabíó, hafnarboltavöll - eða kappakstursbraut.

Svo maður tali nú ekki um þann möguleika sem mér hugnast best, nefnilega að leggja þarna almennilega flugbraut - og flytja alþjóðaflugið í miðbæinn í eitt skipti fyrir öll.

Þá mætti í kjölfarið fylla Flugstöð Leifs Eiríkssonar af vatni og gera að veglegu sædýrasafni - með nægum bílastæðum.

Enter 4/9/06
Dr. Herbert – Dagbók
 
Myglar – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Spesi – Dagbók
 
Kaktuz – Dagbók
 
Myglar – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Spesi – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Spesi – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Dr. Herbert – Dagbók
 
Spesi – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
        1, 2, 3 ... 44, 45, 46, 47  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA