
Já, mikiđ er ţetta nú góđur dagur. Annars segi ég draumfarir mínar ekki sléttar. Er ţađ ţó önnur saga.
Ađ undanförnu hefi ég tekiđ mikinn ţátt í ţví sem í gangi er á ritstjórnarskrifstofu Baggalúts. Ástćđur ţessar eru flóknari en svo ađ hćgt sé ađ telja upp, en afleiđingarnar eru ótvírćđar. Myglar og Enter hafa aldrei veriđ betri vinir og Kaktuz er hér stöđugt á ferđ og flugi.
Dr. Fritzherbert hefi ég hins vegar ekki hitt í háa herrans tíđ. Númi tjáir mér ađ hann sé erlendis, en mig grunar ýmislegt. Doktorinn hefir kannske kunnađ illa kćti minni síđast er viđ hittumst, enda er hann alvörugefinn mađur og kann illa hvers kyns léttlyndi. Ţví kann ađ vera ađ hann forđist mig ţegar hann er á landinu. Hmm... Fjallmyndarlegur mađur engu ađ síđur.
En smart nafn. Einfalt, stutt, traustvekjandi og auđskiljanlegt. Ţjóđlegt. Ţjált. Gagnsćtt.
Stendur ađ líkindum fyrir Nýji BankInn, eđa eitthvađ svoleiđis. Mjög töff.
Ekki skemmir fyrir ađ ţađ er í svo ljómandi dágóđum félagsskap National Bureau of Investigation á Filippseyjum, Niels Bohr Institutet í Danmörku, The National Business Initiative í Suđur-Afríku, National Bridge Inventory í Bandaríkjunum og svo auđvitađ Newcastle Bioinformatics Initiative í Bretlandi. Ekki amaleg skammstöfun ţađ.
Svo býđur ţetta upp á ćgilega skemmtileg gćlunöfn á borđ viđ Nebbinn, Nabbinn eđa jafnvel Nubbinn. Mjög sćtt.
Ţannig ađ ég segi bara: Til hamingju međ stórkostlega velheppnađa nafngift, sem hćfir virđulegri íslenskri bankastofnun og er til ţess falliđ ađ endurvinna traust ţjóđarinnar á bankanum.
Og mikiđ skelfing er ég feginn ađ ekki var bara hlaupiđ til í taugaveiklun og eitthvađ orđskrípi af handahófi valiđ , nú eđa einhver torkennileg merkingarleysa sem gamli Landsbankinn átti á lager.
Svona á ađ gera ţetta. Lengi lifi ENNBÉI.
Megi ţetta fagra nafn lifa međ ţjóđinni međan land byggist – eđa í öllu falli eitthvađ fram eftir nćsta ári.