Dagbók – Spesi
Spesi

Já, mikið er þetta nú góður dagur. Annars segi ég draumfarir mínar ekki sléttar. Er það þó önnur saga.

Að undanförnu hefi ég tekið mikinn þátt í því sem í gangi er á ritstjórnarskrifstofu Baggalúts. Ástæður þessar eru flóknari en svo að hægt sé að telja upp, en afleiðingarnar eru ótvíræðar. Myglar og Enter hafa aldrei verið betri vinir og Kaktuz er hér stöðugt á ferð og flugi.

Dr. Fritzherbert hefi ég hins vegar ekki hitt í háa herrans tíð. Númi tjáir mér að hann sé erlendis, en mig grunar ýmislegt. Doktorinn hefir kannske kunnað illa kæti minni síðast er við hittumst, enda er hann alvörugefinn maður og kann illa hvers kyns léttlyndi. Því kann að vera að hann forðist mig þegar hann er á landinu. Hmm... Fjallmyndarlegur maður engu að síður.

Lesbók frá fyrri tíð

Nú er að duga eða drepast. Eftir hvern stórsigurinn á fætur öðrum er íslenska ólympíuliðið í briddsi komið með 293 í riðlakeppninni. 293 stig!

Einungis ein umferð er eftir - og í þessum skrifuðu orðum berjumst við hatrammri baráttu við blóðþyrst og úrræðagott lið Letta, sem hefur raunar átt undir högg að sækja.

Ég vil að þið áttið ykkur á mikilvægi sigurs og því að við komumst áfram í 16 liða úrslit. Sýnum alþjóðasamfélaginu í tvo heimana. Því þó við séum dvergar að burðum á risavöxnum leikvöngum boltaíþrótta, fimleika og annars líkamlegs erfiðis þá erum við enn risar við ferhyrndan leikvang rökhugsunarinnar.

Áfram Ísland. Ykkar skál! Bermúdaskál!

E.S. (bætt við 14:45)
VÚHÚHÚ! Við komumst áfram. Ég hef aldrei verið glaðari. Aldrei.

Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Spesi – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Spesi – Dagbók
 
Spesi – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Fannar Númason Fannsker – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
        1, 2, 3, ... 45, 46, 47  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA