
Já, ég er hungrađur í dag. Í raun hef ég sjaldan veriđ soltnari. Ég gćti ţó sennilega ekki torgađ heilum hesti, en myndi efalítiđ ráđa vel viđ ađ hesthúsa litlu lambi - ellegar geit. Vildi bara deila ţessu međ ykkur.
Detti mér nú allar dauđar lýs úr höfđi!
Stígur nú ekki ljóti andarunginn, svínahirđirinn sjálfur, upp úr forinni og plantar sér međal helstu seljabrytja heimsins?
Skáskýtur sér kjagandi í hóp fagurlimađra svana á borđ viđ Davíđ Beckham og önnur skrauthćnsn.
Svei mér ef hárklepruđum hamborgararassinum hefur ekki tekist ađ tylla sér án fyrirhafnar í fimmtugasta og fyrsta sćti yfir áhrifamestu tískumógúla samtímans, saxneskra.
Jahá! Mađur ţarf augljóslega ekki ađ ţvo sér um háriđ til ađ gerast tískudrós í heimi viđskiptanna.