
Já, ég er hungraður í dag. Í raun hef ég sjaldan verið soltnari. Ég gæti þó sennilega ekki torgað heilum hesti, en myndi efalítið ráða vel við að hesthúsa litlu lambi - ellegar geit. Vildi bara deila þessu með ykkur.
Loksins.
Greiðslukortafyrirtækin hafa af óendanlegri gæsku sinni og umhyggju fyrir neysluþörf Íslendinga gefið grænt ljós á jólaeyðsluna - nú fyrr en nokkru sinni.
Skyndilega hefur þjóðin heilu milljörðunum aukreitis úr að moða - illtæmanlegum sjóðum sem ekkert þarfara má gera við en að kaupa fleiri brauðristar, konfektkassa og nælonsokka.
Þá er bara að hysja upp um sig buxurnar, bretta upp kragann, grípa kortið - og eyða.
Nóg er til.