Lesbók05.08.02 — Númi Fannsker

Þá hafa Baggalútsmenn snúið aftur úr sínu árlega júlífríi. Að þessu sinni var ferðinni heitið í óvissuferð á slóðir erkihertogans af Hvannsléttu og var afar skemmtilegt að finna söguna vakna til lífsins við hvern stein, hverja þúfu - hvert spor.

Sem betur fer kom ekki til þess að ritstjórn þyrfti að sinna neyðarfréttaþjónustu eins og svo oft vill verða, enda hefur fádæma gúrkutíð verið ríkjandi í íslensku samfélagi undanfarinn mánuð. Helstu fréttir hafa einkum tengst saumaklúbbum og karlakórum, sem ekki hefur þótt tilefni til að sinna í fríinu.

En sannleikurinn spyr ekki um frí, hann hrópar úr myrkri lyginnar á riddara samviskunnar að breiða út hið rétta og undan því kalli mun Baggalútur ekki skorast!

Gestir okkar hafa eftilvill tekið eftir lítilsháttar breytingum á vefnum, en þeim höfum við reynt að halda í algeru lágmarki. Ekki var þó hjá því komist að gera minniháttar útlits- og virknibreytingar til hægðarauka og vonum við að þær falli vel í kramið hjá lesendum.

Að lokum óska ég okkur öllum gleðilegs nýs fréttaárs, með þökk fyrir það gamla. Lifi sannleikurinn!

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Spesi — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
     1, 2, 3 ... 180, 181, 182