
Andúđ mín á tónlist á rćtur sínar ađ rekja til ćskuára minna. Ekki fer ég nánar út í ţađ en smáatriđin eru rakin í Doktorsritgerđ minni sem mun koma út á Baggalút innan tíđar. Í morgun vaknađi ég, mér til mikillar skelfingar, viđ tónlist í útvarpinu. Ekki bara einhverja tónlist, heldur nútímatónlist. Ţó ég sé almennt ekki fyrir tónlist ber ég gott skynbragđ á allar listir og skil gott frá vondu. Ţađ virđist vera einhver lenska hjá tónskáldum nútímans ađ semja falska tónlist og kalla hana svo nútímaverk - eins og ţađ sé ţá bara allt í lagi. ennfremur gera listamenn iđulega í ţví ađ spila ţetta falskt í stađ ţess ađ leiđrétta skáldin. Ástćđan mun náttúrulega vera einhverskonar menningarsnobb og samsćri gegn almúganum. Ţessa menn ćtti ađ fangelsa og húđstrýkja fyrir ţennan sóđaskap. Ţetta á eftir ađ reynast mér ţungur dagur.
Hvađa ófyrirleitni fasisti sér um ađ skipuleggja nýlenduvöruverslanir íslenskar?
Í hvert einasta skipti sem mađur stígur fćti inn í nýja verslun ţarf mađur ađ eyđa dágóđri stund í ađ átta sig á skipulagi og uppröđun matvćla. Ţarna ráfar fólk um stefnulaust - í örvćntingarfullri leit ađ púđursykri og rjóma, međ heppnina eina ađ vopni.
Er til of mikils mćlst ađ vörum sé rađađ eftir einhverju ákveđnu kerfi, rétt eins og bókum eđa hljómdiskum? Hvađ mćlir gegn ţví ađ vörum sé t.a.m. rađađ í stafrófsröđ?
Jú, ţađ mćtti vissulega skilja kćlivörur frá hitaţolnara góssi - en ég sé ekkert ţví til fyrirstöđu ađ kartöflur, kex og kókosmjöl hvíli saman í hillu. Né heldur rúsínur, rauđlaukur og rakvélablöđ.
Hćttum ţessu rugli. Bókasafnsfrćđing í hverja verslun.