Dagbók – Dr. Herbert H. Fritzherbert
Dr. Herbert H. Fritzherbert

Andúđ mín á tónlist á rćtur sínar ađ rekja til ćskuára minna. Ekki fer ég nánar út í ţađ en smáatriđin eru rakin í Doktorsritgerđ minni sem mun koma út á Baggalút innan tíđar. Í morgun vaknađi ég, mér til mikillar skelfingar, viđ tónlist í útvarpinu. Ekki bara einhverja tónlist, heldur nútímatónlist. Ţó ég sé almennt ekki fyrir tónlist ber ég gott skynbragđ á allar listir og skil gott frá vondu. Ţađ virđist vera einhver lenska hjá tónskáldum nútímans ađ semja falska tónlist og kalla hana svo nútímaverk - eins og ţađ sé ţá bara allt í lagi. ennfremur gera listamenn iđulega í ţví ađ spila ţetta falskt í stađ ţess ađ leiđrétta skáldin. Ástćđan mun náttúrulega vera einhverskonar menningarsnobb og samsćri gegn almúganum. Ţessa menn ćtti ađ fangelsa og húđstrýkja fyrir ţennan sóđaskap. Ţetta á eftir ađ reynast mér ţungur dagur.

Lesbók frá fyrri tíđ

Einhverjir eru ađ pirra sig á ţví ađ mótmćli hafi fariđ út um ţúfur í gćr, vegna ţess ađ mótmćlt var tvisvar í henni Reykjavík.

Mér finnst hins vegar langt í frá hafa veriđ gengiđ nćgjanlega langt.

Auđvitađ á fólk ađ geta gengiđ ađ hinum og ţessum mótmćlum vísum um land allt, frá morgni til kvölds. Drifiđ krakkana út og mótmćlt svolítiđ fyrir hádegi og viđrađ svo gamalmennin seinnipartinn í hressilegum síđdegismótmćlum. Ţau ţurfa einfaldlega ađ vera í gangi allan daginn, alla vikuna.

Svo er hćgt ađ senda fjölmiđlum samantekt í vikulok međ hressilegustu rćđubútunum, harđyrtasta kröfuspjaldinu, reiđasta lífeyrisţeganum, dugmesta eggjakastaranum o.s.frv.

Fínt vćri ađ hafa mótmćlin á klukkutíma fresti, á heila tímanum. Stutt og laggóđ. Og í guđs bćnum á einhverjum skjólsćlum stađ, ekki bara einhvers stađar úti á berangri í skítakulda. Bćđi ţarf ađ vera hćgt ađ hlaupa í skjól til ađ pissa og ná lífi í loppna fingur – og eins ţarf ađ hlađa áhorfendastćđin nógu déskoti mörgum aflóga partíhiturum til ađ fólk bláni ekki um of á tám og eyrum.

Veitingar eru líka lykilatriđi. Bölmóđsrćđur og kreppusöngvar ćra uppí manni sultinn. Ef mađur á yfirleitt ađ hafa sig í ađ standa einhvers stađar međ hrađfrystan afturendann og sýna ţessa margfrćgu samstöđu ţá ţarf mađur tvímćlalaust ađ geta gćtt sér á volgu kakói, kaffi, lummum, flatbrauđi og kleinum í leiđinni.

Hafa mćtti stćrstu mótmćlin annars vegar klukkan 13 og hins vegar klukkan 17, en smćrri mótmćli á milli. Ţannig gćtu flestir mótmćlahöfđingjar og athyglispostular fengiđ ađ gjamma í gjallarhorn og allir reiđu trúbardorarnir komist ađ međ innihaldsríku langlokurnar sínar. Svo vćri hćgt ađ hafa skiptimótmćli milli bćjarfélaga og jafnvel fengiđ erlenda atvinnumótmćlendur til ađ sýna kúnstir sínar.

Ađalatriđiđ er ađ ţađ sé alltaf einhver ađ lumbra á járninu og ybba gogginn. Og ef einhver dirfist ađ flissa yfir blánefjuđu fámenninu og hálsbólgnu kröfusönglinu er rétt ađ minna á ađ ţađ var nú hvorki sérlega fjölmennur né góđmennur hópur sem fokkađi ţessu öllu upp fyrir okkur hinum.

Númi Fannsker – Dagbók
 
Myglar – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
Fannar Númason Fannsker – Dagbók
 
Enter – Dagbók
 
     1, 2, 3 ... 45, 46, 47  
Ţjóđbók
Baggalútur er hýstur af alúđ og umhyggju hjá ADVANIA