Ég fer ekki út í dag frekar en síðustu daga. Hún situr ennþá fyrir mér í bil hinum megin við götuna. Hún er búin að vera þar í þrjá daga meira og minna. Ég er hættur að þora að panta mér mat efitr atvikið með pitsusendilinn. Ætlar hún aldrei að gefast upp. Eitt bros og kurteis kveðja á helgargöngu í Hljómskálagarðinum. Ég var bara að reyna að sýna vinskap við samborgara mína .......... jæja ég á alla vega nóg af niðursoðnum saxbauti til næsta daga. Ég verð að bíða og sjá hvað gerist......