
Mikiđ óskaplega leiđist mér fólk. Ég fór í verslun í dag og hugđist kaupa mér sođiđ slátur og skyr, eins og ég geri ávallt á ţriđjudögum. Varđ ţá á vegi mínum í stórverslun einni gamall kunningi minn og skólafélagi Hermann Gunnarsson, skemmtari. Ég rabbađi viđ Hermann og rifjađist viđ ţađ upp hversu afskaplega leiđinlegur hann er og fráhrindandi í öllu fasi sínu og framkomu, er skemmst frá ţví ađ segja ađ ég ţóttist ţurfa á áríđandi fund. Ég er ekki fyrr gengin út úr búđinni en ég rekst á kunningja minn úr skátahreyfingunni, Ţórhall Sigurđsson, fífl og trúđ. Mikiđ skelfilega er hann leiđinlegur mađur, ég ákvađ ađ vera hreinskilinn og sagđi honum ađ hann vćri einhver leiđinlegasti mađur sem ég hefđi kynnst og gott ef ekki enn leiđinlegri en Hermann Gunnarsson, en ţeir hafa löngum eldađ saman grátt silfur. Skiptir ţá engum togum ađ hann fer ađ skćla ţarna á bílaplaninu og ţurfti ég ađ beita öllum mínum sannfćringarkrafti til ađ hugga manninn og fullvissa um ađ ég meinti ekki stakt orđ af ţví sem ég hefđi sagt. Ţađ er vitaskuld lygi, enda mađurinn óbćrilega leiđinlegur.
Ég ţyki međ greindari mönnum, en ţrennt er ţađ sem ég fć ekki međ nokkru móti skiliđ - hversu mjög sem ég brýt og bramla heilann.
1) Hvers vegna í samdauna sokkaplöggum uppeldissystra andskotans er ekki búiđ ađ pusa Samúel komplett inn á tímarit.is? Hvađ er eiginlega til mikiđ af hrossarćktunar- og bćjarmálasneplum sem hafa forgang fram yfir ţetta höfuđdjásn íslenskrar menningarsögu á 20. öld?
2) Hví í uppstoppuđum uppvakningaeistum er rúv.is enn ađ nota ţennan mölétna miđlunarspilara Windows á vefsvćđum sínum? Draugúldnara drasl fyrirfinnst ekki á óravíddum alnetsins. Hvađ heldur ţessi veflufsa ađ hún sé, búlgörsk munalostasíđa?
3) Af hverju hefur engin ţessara niđursođnu, útlćgu útrćsisrottna, eđa einhver heimskríđandi afleggjari ţeirra, reynt ađ kaupa vefsvćđi Baggalúts fyrir metfé – bara svo viđ getum sagt viđkomandi ađ trođa tilbođinu skjálfhendis upp í tambórínuna á sér?