Jæja. Við lokum sjoppunni í dag.
Vefsvæðum samsteypunnar verður lokað hverju á fætur öðru í dag og næstu daga og opnuð aftur eftir hentugleikum þegar haustar.
Þangað til getið þið hlustað á ýmislegt gagnlegt, s.s. fréttaauka Baggalúts (það er nóg að hlusta á einn, þeir eru allir eins) - nú eða nýja snemmsumarsmellinn, sem er æði. Einhverju fleira nytsamlegu gúmelaði úr safni Baggalúts verður svo fleygt hér inn á næstunni, s.s. innslögum úr kosningasjónvarpi RÚV.
Já, og svo er ykkur velkomið að reykja hérna að vild.
Ég er í öllu falli farinn til Bora Bora.