Gagnrýni – Enter

Ég varð þess heiðurs aðnjótandi að sjá kvikmyndina „Heiðursskauta“, eða „Blades og glory“ og er skemmst frá því að segja að ég skemmti mér konunglega. Ég flissaði, skríkti, veltist um og hálfkúgaðist jafnvel á tímabili af hlátri. Sem er fátítt.

Að miklum hluta til er það hinum æ fyndnari Will Ferrell
að kenna, hvern ég þoldi illa í árdaga, en hann er hér í banastuði - einnig er hinn óheppilega tennti Jonathan Heder
afar skemmtilegur, en hann kannast menn vonandi við úr hinni nördum prýddu „Napoleon Dynamite“.

Þetta glimrandi skemmtilega par fer algerlega á kostum í tvíliðaleik karla í listskautadansi og gerir þessa virðingaverðu íþrótt í senn áhugaverða og skemmtilega - og er það vel.

Handritsgerð var til fyrirmyndar, en tildrög hennar eru mér nokkur ráðgáta. Svo virðist sem félagarnir lítt þekktu John Altschuler og Dave Krinsky, sem helst hafa unnið sér til frægðar að skrifa þætti af hinni ömurlegu lágkúr „King of the hill“ (þann síðasta árið 2002) hafi eytt síðustu árum í að fínpússa leikgerð af sögu hinnar enn minna þekktu leikkonu „Busy Philipps“ (veitið athygli sviðsnafninu), sem helst hefur alið manninn í lítt eftirminnilegum læknisleik í Bráðavaktinni. Það að þetta ólíklega teymi hafi hóstað upp svo ljómandi skemmtilegum farsa vekur vissulega hjá mér ánægju, en einnig furðu - jafnvel tortryggni.

Leikstjórarnir Josh Gordon og Will Speck hafa heldur andkotann ekkert gert af viti. Þið skulið því njóta þessarar myndar til fullnustu og án frekari væntinga - því einkar ólíklegt er að viðlíka skemmtilega útfærð hugmynd komi frá þessum einkennilega samsetta hópi framar.

Fréttir
Enter – 3/6/13
 
Númi Fannsker – 28/5/13
 
Útgáfa
Lesbók frá fyrri tíð

Nú er hvíslað í kapp við haustnæðinginn að Davíð Oddsson sé á leið í hásætið í Hádegismóum.

Einhverjir eru foj.
Einhverjir hneykslaðir.
Einhverjir ætla að segja áskriftinni upp.
Hætta að moggablogga.
Og skrifa velvakanda.

Aðrir eygja von um að Sigmund snúi aftur.
Jafnvel Ferdinand.
Og slúðrið hverfi af baksíðu.
Og snúi aftur á forsíðu.

Ég hugsaði bara: Hólífokk ... nú verður fjör.

Enter – Gagnrýni
 
Enter – Gagnrýni
 
Enter – Gagnrýni
 
Spesi – Gagnrýni
 
Enter – Gagnrýni
 
Enter – Gagnrýni
 
Spesi – Gagnrýni
 
Enter – Gagnrýni
 
Enter – Gagnrýni
 
Enter – Gagnrýni
 
Spesi – Gagnrýni
 
Enter – Gagnrýni
 
Enter – Gagnrýni
 
Enter – Gagnrýni
 
Enter – Gagnrýni
 
Enter – Gagnrýni
 
Enter – Gagnrýni
 
     1, 2, 3, 4, 5  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA