Lesbók10.11.06 — Enter

Sveita- og alþýðutónlistararmur Baggalúts mun, ef veður leyfir, halda til Bolungarvíkur snemma í fyrramálið til að leika þar fyrir dansi og drykkjulátum. Verður sveitin skipuð einvalaliði og m.a. verða flutt sérstaklega til landsins tvö sænsk krútt, ef veður leyfir.

Hafa skipuleggjendur ferðarinnar legið yfir veðurspám undanfarna daga og fölnað og svitnað á víxl. Allt er vitanlega á kafi í snjó þarna á nyrstu mörkum hins byggilega heims og hættan á veðurteppingu eitthvað í kringum 97% prósentustigin.

Kostir þess að svífa nötrandi gegnum sviptivinda og éljagang voru metnir fleiri en að mjatlast akandi yfir glerhálar heiðar og inn eftir sköflóttum fjörðum – og var því ákveðið með semingi að fljúga á leiðarenda.

Hafa heimakærir liðsmenn Baggalúts varla sofið dúr frá því fyrstu stormviðvaranir tóku að berast – og hafa skelfilegar myndir ísi lagðra hreyfla, grjótspúandi fjallshlíða, hrynjandi snjóþekna, blóðþyrstra ísbjarna og herskárra Hnífsdælinga svifið mönnum fyrir hugskotssjónum síðustu daga og nætur.

Hafa menn búið sig og sína undir yfirvofandi vetursetu innikróaðra köntrítónlistarmanna á hjara veraldar jafnt andlega sem líkamlega; sótt námskeið í sjófugla- og rostungsveiði, ísklifri og bolvíkskri menningarsögu.

Á morgun rennur svo dagurinn örlagaríki upp. Ef allt (eða flest) gengur að óskum mun fölleit og taugateygð sveitin troða upp um miðnæturbil og trylla lýðinn af einurð og áfergju - jafnvel frumflytja eins og eitt jólalag.

Ef - og bara ef - veður leyfir.

 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, ... 180, 181, 182