Lesbók25.07.02 — Fannar Númason Fannsker

Í kirkjugarðinum er alltaf ró og spekt. Friður. Innantómir líkamar hinna brottkvöddu liggja þar og brotna niður í rólegheitunum. Uns þeir loks sameinast holdi jarðar sem einn líkami. Undir yfirborði jarðar virðist allt með felldu. Húð flagnar, hár þornar, vöðvar rýrna. En á yfirborðinu er eitt og annað ekki eins og það á að vera. Þar leggja syrgjendur sínar grasmottur á leiði, reyta arfa, gróðursetja sumarblóm og stinga jafnvel niður trjáhríslum. Þeir vökva, hlúa að - líkt og handanfarinn lifni dálítið með hverju laufblaði, hverri rót, hverjum blómknappi. Þeir gera sér ekki grein fyrir hættunum sem leynast í kirkjugarðinum. Sjá ekki glyrnurnar sem fylgja hverri hreyfingu þeirra. Augun sem glampar dulítið á í ljósaskiptunum - stundum rauð sem blóð, stundum svört sem hin ystu myrkur. Þetta eru haukfrán augu garðkanínunnar, sem vílar ekki fyrir sér að leggjast í skæruhernað og beita viðurstyggilegum hryðjuverkum til að ná fram sjúkum ætlunum sínum. Hikar ekki við að níðast á heilögum krönsum hinna syrgjandi. Tætir í sig blóm og ávexti þeirra sem eiga um sárt að binda. Svei! Megi hin blóðþyrsta jurtnauðgandi garðkanína brenna í helvíti um aldur alda fyrir ófyrirgefanlega glæpi sína gegn mannkyninu öllu!

 
Enter — Saga
 
Enter — Saga
 
Myglar — Saga
 
Númi Fannsker — Saga
 
Myglar — Saga
 
Fannar Númason Fannsker — Saga
 
Myglar — Saga
 
Enter — Saga
 
Kaktuz — Saga
 
Kaktuz — Saga