Lesbók06.09.06 — Númi Fannsker

Jæja - ætla nú Danir að fara að vaða hingað og tröllríða íslenska landsliðinu í knattspyrnu? Gangi þeim vel. Ef þeir halda að Íslendingar séu þeir durgar að leyfa dönskum að vaða yfir sig einn ganginn enn þá verður þeim komið rækilega á óvart í Laugardalnum í kvöld. Ég hef nefnilega afar traustar heimildir fyrir því að Íslendingar leggi Molbúana að velli, 2-1 - hið minnsta. Minnugt árhundraða niðurlægingar danska konungsveldisins og mergsogs þess í nafni heimsvaldastefnu sem grundvallaðist einkum og sérílagi af þrælahaldi og skipulögðum pyntingum á fátækari þjóðum en Dönum sjálfum, mun íslenska landsliðið í knattspyrnu nefnilega rísa gegn sínum forna kúgara og láta hann finna til íslenska tevatnsins.

Annars kaupum við bara þetta bévítans landslið þeirra og búum til 2 blaklið úr því. Eða kannski lúðrasveit.

ÁFRAM ÍSLAND! - jafnvel þó við getum ekki neitt

 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Myglar — Dagbók
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Dagbók
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Gagnrýni
 
        1, 2, 3, 4, 5, 6 ... 180, 181, 182