
Heyriđ mig nú. Hvađ er eiginlega međ ţessa Tjörn?
Á bara ađ taka ţví ţegjandi og hljóđalaust ađ besta byggingarland borgarinnar liggi undir vatni?
Fólk er ađ vćla yfir ţví ađ einhverjir örfoka melar uppi á heiđum séu á leiđinni undir vatn og svo liggur ţessi daunilli drullupollur fyrir fótum manns alla daga, engum til ánćgju nema brauđbelgdum vargfugli.
Ţarna mćtti nú aldeilis byggja eitthvađ skemmtilegt. Tívolí til dćmis, bílabíó, hafnarboltavöll - eđa kappakstursbraut.
Svo mađur tali nú ekki um ţann möguleika sem mér hugnast best, nefnilega ađ leggja ţarna almennilega flugbraut - og flytja alţjóđaflugiđ í miđbćinn í eitt skipti fyrir öll.
Ţá mćtti í kjölfariđ fylla Flugstöđ Leifs Eiríkssonar af vatni og gera ađ veglegu sćdýrasafni - međ nćgum bílastćđum.
Ţá er blessađur Síminn kominn međ nýtt slagorđ, svohljóđandi:
"Ţetta er ţín hugmynd - viđ hjálpum ţér ađ láta hana gerast"
Í ţessari alltumlykjandi margmilljónkróna ímyndarbreytingu og yfirhalningu - hefđi ekki mátt sjá af svosum eins og tíuţúsundkalli og fá einhvern atvinnulítinn prófarkalesara til ađ lesa ţetta yfir? - eđa bara einhvern međ vott af tilfinningu fyrir íslenskri tungu, t.d. leikskólabarn?
Hefđi ţađ sakađ?
Ţvílíkir endemis málníđingar og orđsifjabarbarar.