Pistlingur – Fannar Númason Fannsker
Fannar Númason Fannsker

Ađ áeggjan föđur míns skrifa ég nú fáeinar línur til ađ létta á hjarta mínu.
NATÓ og Ísland
Engan mann hefi ég hitt fyrr né síđar sem ekki hefir átt í hjarta sínu ţann draum ađ land vort sé ekki haft ađ söluvöru á markađstorgi auđvaldsins. Fjöldinn allur af hugsjónarmönnum hefir lagt ţessu göfuga takmarki liđ međ óbilandi trú sinni á íslenska ţjóđ og menningu. Stundum svo mjög ađ ekkert, EKKERT málefni annađ, hvursu merkilegt sem ađrir hafa ţađ taliđ hefir ađ komist. Ekki ćtla ég nú ađ predika bođorđ frjálsrar hugsunar en minni á kraft Fjölnismanna og ţeirra líka á liđnum öldum.
BYLTINGIN HAFIN
Ef til vill dettur einhverjum í hug ađ ţeir sem svo er komiđ fyrir elski hvorki fjölskyldur sínar né ađra en slíkt er argasta firra. Vér erum öll börn ţessa lands og afsprengi menningar ţess. Látum ekki villa okkur sýn í hita leiksins. Hverfum aftur til gullaldar ţjóđar vorrar er hetjur riđu um héruđ og smériđ draup af strái hvurju. Elskum land vort án ţess ađ glepjast af trúvillu bođbera andskotans í vestri.

Góđar stundir

Nú geturđu sent Fannari tölvupóst!

Fréttir
Númi Fannsker – 16/5/13
 
Enter – 13/5/13
 
Útgáfa
Lesbók frá fyrri tíđ

Dettur engum í hug ađ e.t.v. sé samhengi milli rafmagnsleysisins í Bandaríkjunum, Japan, Svíţjóđ, Danmörku og Ítalíu? Hvarflar ekki ađ nokkrum manni ađ hér sé eitthvađ vafasamt á seyđi?

Hvar eru t.d. ţeir heiđursmenn Osama bin Laden og Saddam Hussein Al Tigriti? Gćti nokkuđ veriđ ađ ţeir ráfi um heimsbyggđina og slái út "ţjóđaröryggi" hér og ţar?

Viđ skulum gćta okkar á ţví ađ láta ekki draga okkur á asnaeyrunum. Heimsöryggiđ er e.t.v. viđ ţađ ađ vera slegiđ út svo Rafveitustjórinn Bush og litlu rafvirkjarnir hans geta náttúrulega ekki látiđ ţađ fréttast ađ rafmagnseftirlitinu sé um ađ kenna.

Númi Fannsker 29/9/03
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Sálmur
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Gagnrýni
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Myglar – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Gagnrýni
 
     1, 2, 3 ... 88, 89, 90  
Ţjóđbók
Baggalútur er hýstur af alúđ og umhyggju hjá ADVANIA