Lesbók24.11.05 — Númi Fannsker

Jæja - þá er umræðan um fíkniefnaneyslu unglinga farin af stað aftur. Eina ferðina enn. Fréttin af börnum á grunnskólaaldri á bólakafi í fíkniefnum. Alltaf jafnstuðandi frétt. Alltaf jafnhryllilega sláandi. Allir alltaf jafnyfirsighlessa. Samt er búið að flytja okkur þessa frétt hundraðþúsund sinnum - og hún er alltaf eins.

Af hverju druslast okkar ágæta samfélag ekki bara til að ráðast gegn þessum ósköpum af fullum krafti? Af hverju setjum við ekki bara ALVÖRU peninga í fræðslu fyrir þessa krakka og foreldra þeirra - eigum við að segja milljón fyrir hvert skipti sem þessi umræða hefur farið af stað? Bara negla einhverjum milljörðum í að búa til fræðsluefni sem krakkarnir nenna að taka til sín. Hætta þessu helvítis plakatavæli og keyra á þetta eins og menn!

Upp með veskið - burt með dópið!

 
Kaktuz — Saga
 
Kaktuz — Sálmur
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Fannar Númason Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
        1, 2, 3 ... , 180, 181, 182