Lesbók23.09.05 — Enter

Í kvöld stígur köntrísveit Baggalúts á stokk í sal góðtemplara, Grandrokki, Smiðjustíg 6 á sérlegum miðnæturtónleikum - þeim síðustu um nokkra hríð.

Var gerður það góður rómur að leik sveitarinnar um síðustu helgi að ákveðið hefur verið að gefa landsmönnum annað færi á að berja þessa framsæknustu tónleikasveit landsins augum.

Valinn maður verður í hverju rúmi, og verða hljóðfæralekarar vel á annan tug að þessu sinni. Sérlegur heiðurs- og leynigestur verður Keflvíkingurinn Guðmundur Rúnar Júlíusson, sem ætti að vera gestum að góðu kunnur en hann hefur sungið lög á borð við Mýrdalssandur og Betri bílar.

Mun sveitin flytja úrval helstu smella sinna og Rúnars, auk efnis úr smiðju Willie Nelson, Johnny Cash, Tammy Wynette og Hank Willams.

Um upphitun sér útvarpsmannadúóið Sviðin Jörð, en það skipa þeir Freyr Eyjólfsson og Magnús Einarsson, sem jafnframt er mandólín­leikari köntrísveitarinnar. Hefja þeir upp raust sína laust eftir kl. 23.00.

Þeim góða sið verður svo haldið að hafa fræga seljabryta (e. celebrities) í miðasölu síðast stóð frú Vigdís sig eins og hetja, en nú verður það Geir H. Haarde sem mun spreyta sig.

Er fólk hvatt til að mæta sæmilega snyrtilega til fara og að gefnu tilefni er kvenfólk beðið að hemja sig þegar forsöngvararnir hefja upp raust sína - og halda nærklæðnaði, hótelherbergjalyklum og sjálfum sér af sviðinu.

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Dagbók
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, 4 ... 180, 181, 182