Lesbók07.09.05 — Enter

Ég á nú barasta ekki eitt aukatekið orð. Hinum hæstu herrum þjóðarinnar þóknast að leggja eitt þúsund milljónir króna, íslenskra, í húsbyggingu fyrir Stofnun íslenskra fræða.

Skitinn milljarð!

Smáskítlegan og vesælan milljarð í lágkúrulegt úthýsi, ótótlegt gripahús við Melahlöðuna meingölluðu. Þetta er reginhneyksli.

Þarna höfðu þingdulurnar okkar tækifæri til að splæsa tæpum 70 milljörðum í tígulega höll, musteri, gullsleginn helgidóm mennta og menningar. Verðug hýbýli afburðamanna á sviði íslenskra fræða og ásættanlega umgjörð fróðleiks­fýsna hverskonar og rannsókna.

Þarna höfðu þessir fimbulglópar tækifæri á reisa glæstan minnisvarða um íslenska arfleifð, dyngju íslenskra dyggða. Tákn­mynd sjálfstæðisþrár og dirfsku, eldiskví andlegra yfirburða. Gotrauf elju og snilldar.

Í Vatnsmýri, á rústum úreltra flugbrauta, hefði það mátt rísa, borgvirki vísdóms og visku. Glóandi viti sem gnæft hefði yfir borginni um þúsundir ára. Sindrandi varða á tímans myrku slóð.

Sjáið þetta fyrir ykkur. Hjarnhvítir virkis­múrarnir iðandi af sígrúskandi íslensku­fræðingum, kátum málfræðingum, búldu­leitum og sællegum sagnfæðingum. Hvarvetna nýjar uppgötvanir, hvívetna blómstrandi snilli. Íslandi allt.

Í kjallaranum hefði svo mátt marmara­klæða dulítið grafhýsi og hafa þar til sýnis gestum og gangandi múmíur þeirra Nordals, Ólsens og Laxness sem nú liggja undir skemmdum í kartöflu­geymslum Árbæjarsafns.

En nei, þröngsýni okkar misvitru bryta er slík og þvílík að þeir kjósa heldur að leggja vegslóða upp í varpstöðvar meðal­mennskunnar, Grafarvog, spreða í björgunar­trillu fyrir Landhelgisgæsluna og klambra upp heilsugæslustöð við Hringbraut en að hlúa sem skyldi að íslenskum fræðum.

Afhýsi á Melavelli skal duga Íslands næsta árþúsundi.

Beinasnar.

 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, ... 180, 181, 182