Forystugrein – Enter
Enter

Jæja. Þá er blessað bensínið komið upp fyrir 120 krónur á lítra. Í þetta skiptið ku það hafa hækkað vegna hvassviðris í henni Ameríku. Skítt, vissulega, en svona er nú bara heimurinn. Ekki ráðum við veðrinu þarna vesturfrá.

Þeir mega þó eiga það, blessaðir bensínsölumennirnir að þeir hækkuðu ekki lítrann nema um fjórar krónur þrátt fyrir að þörfin í síðustu viku hafi verið, eins og flestum er kunnugt, 8 krónur og 50 aurar. Þetta eru auðvitað öðlingar, alltaf tilbúnir að fórna sér fyrir alþýðuna.

Svo er það auðvitað orðum aukið hjá mér að lítrinn sé kominn yfir 120 krónur, því vissulega get ég hæglega dælt sjálfur á bílinn fyrir skitnar 117 krónur, rúmar. Ég á ekki að láta mína leti flekka orðspor blessaðra bensínsölumannanna.

En ekki er útlitið gott. Nei, nú er þörfin, eins og þið eflaust vitið orðin heilar sjö krónur. Sjö króna þörf! Hugsið ykkur bara. Samt bíða þeir, blessaðir, ætla jafnvel að bíða til morguns. Því auðvitað vilja þeir ekki hækka lítraverðið fyrr en fullreynt er að það gangi ekki til baka. Hvílík ósérhlífni. Hvílík mannúð.

Ég vil bara hvetja fólk, um leið og það léttir undir með bensínafgreiðslufólkinu og dælir sjálft (og sparar um leið!) að gauka nú fimmhundruðkalli, eða þúsund, aukreitis í kassann - okkur munar ekkert um það, en það getur skipt sköpum fyrir bensínsölumennina, blessaða.

Og ekki viljum við að blessaðir bensínsölumennirnir fari á hausinn. Nei, hjálpumst að, höldum þeim á floti, ekki nema bara fyrir það að halda samkeppninni gangandi.

Lesbók frá fyrri tíð

Rétt er að vekja athygli á að samhverfurnar eru aftur aðgengilegar, undir 'Söfn - samhverfur'.

Samhverfur eru orð eða setningar sem lesa má jafnt afturábak sem áfram. Það þykir mikil og góð íþrótt í mörgum löndum að hnoða saman samhverfum, en af einhverjum ástæðum hefur það verið að mestu vanrækt hér á landi.

Við hvetjum lesendur að senda okkur samhverfur sem þeir rekast á og munum við reyna að birta þær eftir föngum.

Fannar Númason Fannsker – Forystugrein
 
Kaktuz – Forystugrein
 
Enter – Sálmur
 
Kaktuz – Forystugrein
 
Enter – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Enter – Saga
 
Fannar Númason Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Sálmur
 
Kaktuz – Sálmur
 
Enter – Sálmur
 
Myglar – Sálmur
 
Kaktuz – Saga
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
        1, 2, 3 ... 87, 88, 89, 90  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA