Forystugrein – Enter
Enter

Ritstjórn Baggalúts snýr nú aftur úr sumarfríi, endurnærð. Sumarfríinu vörðu ritstjórnarmeðlimir í gagngera endur­mennt­un; þ.á.m. þriggja vikna power-námskeið í stjórnun fjölmiðlasamsteypna, helgar­námskeið í sálar­rannsóknum og heilun, mánaðar­námskeið í hirðsiðum og æðri kurteisi og þriggja stunda tilsögn í angólskri útskurðartækni.

Nokkuð er um nýbreytni. Sérstaklega skal bent á baksíðu Baggalúts, sem nú er í fyrsta sinn aðgengileg á Internetinu. Þar má m.a. finna skrípó, þrautir og tilsögn í mannasiðum.

Einnig bjóðum við í fyrsta sinn upp á útprentanlegar myndir í djarfari kantinum í veggpjaldastærð á síðu 6.

Helsti styrktaraðili Baggalúts, hinn geð­þekki Tino Martini mun svo opna nýja, allerótíska og spennandi síðu á næst­unni.

Að lokum er rétt að minna landsmenn á að Köntrískífa Baggalúts er á leið til landsins með brynvarinni fílalest og er væntanleg í verslanir á allra næstu dögum.

Njótið vel.

Lesbók frá fyrri tíð

Hvað sjá þessir útlendingar eiginlega við þessa skvaphúðuðu hlemmibévuðu hvali? Þessar afmynduðu og ofvöxnu fljótandi beljur sem engan tilgang hafa og engum eru til gagns.

Hvað fær fólk til að hópast á einhverjar velgjuhvetjandi útsýnistrillur í þeirri veiku von að sjá eitt ferlíkið villast upp á yfirborðið? Og hvað fær fólk til að vilja vernda þennan ófögnuð?

Til hvers?

Einhverjir halda því fram að þetta sé svo skynugt. Þvaður. Þessi útbelgdu fitukeppir, sem sátu eftir þegar restin af spendýrunum komu sér á þurrt , geta ekki einu sinni bjargað sér út úr heilu fjörðunum villist þeir þangað.

Aðrir vilja meina að þessi grey séu í útrýmingarhættu. Þvættingur. Sé miðað við rúmmál eru þessi gerpi í einna bestu málum allra spendýra, enda þarf ekki nema eitt kvikindi á móti hverjum heilum mörgæsastofni svo dæmi sé tekið.

Það eina sem ég sé athugavert við að murka líftóruna úr öllum þessum lýsisfylltu hnísum, hrefnum og reyðum er að allt er þetta gersamlega óhæft til átu.

En það má þá alltaf hola þetta helvíti innan og nýta sem þjóðvegasjoppur, biðskýli ellegar kamra.

Túristarnir ættu að fíla það.

Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Sálmur
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Gagnrýni
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Myglar – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Gagnrýni
 
     1, 2, 3 ... 88, 89, 90  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA