Forystugrein – Enter
Enter

Breskir dónakarlar völdu á dögunum leikkonuna snoppufríđu Evu Longoriu ţá kynţokkafyllstu í heimi.

Ţessi smágerđa Texasmćr, sem varđ ţrítug fyrr á ţessu ári, hefur sannarlega skotist hratt upp stjörnuhvolfiđ og er ţar helst um ađ kenna frammi­stöđu hennar í ţáttunum um eiginkonurnar ađţrengdu, sem einmitt eru í miklu uppáhaldi hjá ritstjórn Baggalúts.

Ţađ kom mér ekki á óvart ađ hún Eva mín skyldi rúlla yfir ađrar draumheimadrottningar í ţessu kjöri ţví ekki er öfsögum sagt ađ skjárinn hreinlega ljómi upp ţegar hún trítlar um fyrir framan myndavélarnar ellegar stútsetur ţrýstnar varirnar og dillar straumlínulöguđum lendunum framan í heimsbyggđina.

Helst ađ hún minni á blessunina hana Victoriu Principal á velmektarárum Dallass — nema hvađ Gabrielle í seiđandi túlkun Evu er vissulega ólíkt ástríđufyllri, tilkippilegri og útsjónarsamari en hin hreinlynda Pamela.

Baggalútur óskar henni Evu sinni hjartanlega til hamingju međ ađ hafa loks hlotnast sú viđur­kenning sem henni ber og vonar svo sannarlega ađ hún nái ađ fóta sig á hálli braut frćgđarinnar og fái tiplađ léttklćdd og litfríđ um skjái og skerma heimsins um ókomna framtíđ.

Lesbók frá fyrri tíđ

Ţađ er rétt ađ árétta hér ađ langafasta hefst í dag, miđvikudag í 7. viku fyrir páska.

Of lengi hafa mér ţótt samferđamenn mínir taka heldur léttúđlega á föstunni - úđađ í sig kjötmeti og sýnt pínu Krists bćđi óvirđingu og hluttekningarleysi.

Er til of mikils mćlst ađ viđ sýnum frelsara alls mannkyns ţá lágmarkskurteisi ađ neita okkur um pulsu međ öllu ţessa fáu daga sem eftir lifa til páska? Myndi ţađ drepa okkur ađ sleppa pepperóníinu af pítsunni, svona einu sinni?

Mér ţykir ţađ fortakslaus dónaskapur af ţjóđ, sem hefur kristindóm sem lögfesta ríkistrú, ađ blása upp fćđingu, upprisu og uppstigningu Krists - en ćtla sér svo ađ sleppa viđ ađ međtaka og upplifa pínuna, angistina og ţjáninguna.

Annađ hvort tökum viđ allan pakkann eđa ekkert.

Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Sálmur
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Sálmur
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Gagnrýni
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Myglar – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Gagnrýni
 
     1, 2, 3 ... 88, 89, 90  
Ţjóđbók
Baggalútur er hýstur af alúđ og umhyggju hjá ADVANIA