Lesbók18.02.05 — Númi Fannsker

Heyr á endemi! Er nú einhver kelling farin að stjórna Flugleiðum?! Síðan hvenær hefur kvenfólk vit á flugvélum? Eða bara vélum yfirleitt?

Ekki nóg með að borgarstjórinn sé kona og þrír - segi og skrifa þrír - ráðherrar séu konur, heldur á nú að fara að stofna lífi og limum flugfarþega í hættu með því að láta kvenmann taka ákvarðanir. Hvert stefnir þetta blessaða fyrirtæki? Ætlar það að láta setja pottablóm í alla glugga í flugvélunum? Hekla krúsídúllur á sætispúðana? Bjóða upp á ofsasmart vatteruð terlínbjörgunarvesti?

Ég veit satt að segja ekki heldur hvert þetta samfélag stefnir. Konur eru rétt nýbúnar hengja upp af sér svuntuna og leggja frá sér skúringafötuna þegar það þykir bara sjálfsagt mál að þær ráði hér lögum og lofum.

Heyr á endemi!

 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, ... 180, 181, 182