Lesbók15.12.04 — Enter

Eitthvað er ég þessa dagana, eins og raunar oft áður, að heyra kvabb og kveinstafi félítilla landa minna vegna sóunaræðis og kaupofsa þeirra aurameiri.

Fólk hnussar og froðufellir yfir því að menn vogi sér að splæsa í nokkurra kílóþúsunda armbandsúr, vatnsrennibraut í baðherbergið eða nærhald úr mörgæsafiðri til að gefa ástvinum í jólagjöf. Þetta þolir bónusþjakaður almúginn illa og kallar spillingu, bruðl og siðleysi. Þeim finnst þetta nefnilega ekki sanngjarnt.

En þetta á bara ekkert að vera sanngjarnt - það virkar einfaldlega ekki þannig. Það er margoft búið að reyna að byggja upp sanngjörn þjóðfélög, hingað og þangað um hvers konar hvippa og hvappa - einhverjar miðjumiðaðar öllfífliní­skóg­inum­eruvinir-kommúnur sem undan­tekningar­laust fara allt í senn í vaskinn, súginn og hundana.

Og afhverju? Jú, vegna þess að þessir fáu, „sjúklega heppnu“ og „viðurstyggilega spilltu“ einstaklingar sem staddir eru í lífríkinu eingöngu til að græða peninga, eignast hluti og selja þá aftur - þeir bara fara eitthvað annað.

Því hver er tilgangurinn með að verða óviðjafnanlega ríkur ef maður má ekki kaupa sér sniðugt dót, helst fáránlega dýrt? Flatbotna sportbíla, fílabeinsparket, fjarstýrðar golfkúlur, nettengt klósett og nýjan rass? Það er bara hluti af fjörinu, partur af pakkanum. Það stendur í leiðavísinum.

Hættið því þessu ekkisens öfundarsífri og unið maurapúkum landsins að fá sér sitt heimabíó fyrir jólin. Annars bara stinga þeir af og við hin getum skriðið aftur niður í jörðina með myglaða mandarínukassana okkar, bónuskonfektið og höktandi DVD-spilarana.

 
Kaktuz — Saga
 
Kaktuz — Sálmur
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Fannar Númason Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
        1, 2, 3 ... , 180, 181, 182