Forystugrein – Enter
Enter

Ég bara trúi þessu ekki. Ég barasta þverharðneita að trúa þessu. Einn ganginn enn - og enginn segir múkk? Ekki bofs - ekki píp.

Hafið þið litið á dagatalið? Jú, mikið rétt - aðfangadagur er á föstudegi. Húrrajibbívei fyrir þingmenn og skólabörn. Ojbaradjöfuls­ósanngirnis­ömurlegheit fyrir okkur hin.

Það skyldi þó ekki vera? Jú, mikið rétt. Það er enn eina ferðina verið að hafa okkur að fíflum.

Hann hlýtur að liggja garggrátandi úr hlátri í gröfinni, biblíumenntaði bavíaninn sem fyrstur var spurður hvenær best væri nú að halda blessuð jólin:

- Nú á afmæli jesúbarnsins, auðvitað.
- Já auðvitað. Hvenær er það?
- Ööö, bara í næstu viku.
- Í desember?
- Jájá. Best að drífa þetta bara af.
- Ókei. Hvaða dag?
- Tjahh. Hvað finnst þér?
- Föstudag kannski? Þúveist til að stemma við þúveist föstudaginn langa. Gæti verið sniðugt. Líka til að fá lengri helgi.
- Hmm. Þú meinar það. Ókei.
- Flott.
- Nei bíddu. Bíddubíddu - Við skulum aðeins sprella í liðinu. Höfum það 25.
- Ha? En þá er það alltaf að breytast!
- Hahaha. Já. Smá svona jólagrín. Við breytum því svo bara til baka þegar allir verða orðnir brjálaðir.
- Ókei!

Ég lýsi hér með frati á núverandi jólafyrirkomulag og mun ótrauður halda aðfangadag hátíðlegan fjórða miðvikudag í aðventu, sem að þessu sinni ber upp á 22. desember - og hvet ég aðra til að gera slíkt hið sama.

Góðar stundir.

Fréttir
Númi Fannsker – 16/5/13
 
Enter – 13/5/13
 
Útgáfa
Lesbók frá fyrri tíð

Jæja - þá er bara að koma sumar eina ferðina enn. Ha. Yndislegt.

Túristinn er kominn, sá fyrsti sást á Eyrarbakka í síðustu viku. Svanur á tjarnir og þröstur í tún. Dásamlegt.

Grillið komið út á svalir og svona. Kamparí, órans... - klakar. Æi þetta er svo gaman.

En áður en sumarið gengur í garð er þó eitt sem ævinlega þarf að gera til að koma sér í sumargírinn. Þennan kitlandi sumarfíling - en það er að hlusta á sumarlag Baggalúts.

Gleðilegt sumar.

Númi Fannsker 19/4/05
Enter – Forystugrein
 
Enter – Sálmur
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Enter – Forystugrein
 
Númi Fannsker – Dagbók
 
Enter – Forystugrein
 
        1, 2, 3, 4 ... 88, 89, 90  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA