
Nú er mér öllum lokið! Eru Íslendingar virkilega þeir apakettir að láta Kínverja stjórna því hvaða túristar mega heimsækja landið yfir hásumartímann? Ég hefi staðið í þeirri meiningu að hérlend stjórnvöld vilji stuðla að fjölgun erlendra ferðamanna. Sú er þó ekki raunin. Ekki ef ferðamennirnir eru meðlimir í alþjóðlegri leikfimis- og friðarhreyfingu. Hinir tignu gestir frá Kína eru nefnilega yfir það hafnir að þurfa að berja augum fólk sem er ekki sama sinnis og þeir. Fólk sem vill benda á þau voðaverk sem gestir okkar úr austri hafa unnið gegn friðelskandi heilsuræktendum eins og meðlimum í Falun Gong.
En gott og vel, forseti Kína telur að ef engin mótmæli eru sýnileg, sé engu að mótmæla. Og dómsmálaráðherra og hennar kónar virðast á sama máli, enda gera þau allt til að styggja ekki erlenda gesti, eins og sást best á NATO-fundinum, þar sem stórhættulegir starfsmenn hótels Sögu voru sendir heim og í heimsókn Li Pengs á dögunum, þegar blaðamenn voru lamdir og þeim meinað að taka myndir af höfðingjanum. Einnig hafa þjónar lýðræðisins í dómsmálaráðuneyti og hjá Ríkislögreglustjóra gert grein fyrir ákvörðun sinni með því að þungvopnaðir lífverðir forsetans séu líklegir til að hefja skothríð, sé stunduð hugleiðsla of nálægt hinum viðkvæma forseta. Afhverju í ósköpunum er verið að hleypa þvílíkum villimönnum inn í landið á sama tíma og friðsælum félögum í Falun Gong-íþróttafélaginu er meinuð landganga á Íslandi? Ég krefst þess að þvílíkir brjálæðingar séu afvopnaðir við komuna til landsins, ella mun ég halda mig innandyra meðan á heimsókninni stendur til að verða ekki á vegi slíkra vitfirringa. En það er auðvitað það sem Kínverjar og laganna verðir vilja; að íbúar og gestir þessa lands haldi sig fjarri slíkum höfðingjum, svo þeir geti sannfært sig um að á Íslandi sé fólki sama um mannréttindabrot og yfirgang þeirra. Og hvað er svosem í húfi fyrir Íslendinga neiti þeir að lúta kröfum Kínverja? Hætta þeir við að koma? Og hvað með það? Geti þeir ekki sætt sig við lýðræðislegar og samfélagsvænar aðstæður á Íslandi, eiga þeir að halda sig heima hjá sér. Ef manni er boðið í náttfatapartí, mætir maður í náttfötum! Maður telur ekki alla í partíinu á að klæðast engu, af því að maður sefur sjálfur nakinn.
Hvað ætla íslensk stjórnvöld að ganga langt í sleikjuskap sínum við erlendar þjóðir? Hversu djúpt geta þeir hneigt sig fyrir yfirgangi Kínverja? Hve gleitt ætlar lýðveldið Ísland að beygja sig þegar Kína, í sturtuklefa heimsins, kastar sápunni fyrir fætur þess?
Góðar stundir.
Rosalega er ósanngjarnt að líkdólgurinn úr Neskaupstaðarmálinu sem sagði sannleikann við yfirheyrslur skuli ekki hafa fengið vægari dóm en félagar hans. Hann ók reyndar bílnum, sökkti líkinu og stakk það í belginn ítrekað til að það flyti nú ekki upp - en samt, þetta er ekki sanngjarnt.
Svo fundust á heimili hans loftriffill, skammbyssa, haglabyssur, 20 hnífar, lásbogar og gormakylfa (hvað sem það nú er) - en ég meina, það er ógeðslega ósanngjarnt að hann skuli ekki fá vægari dóm en hinir sem fengu far með honum til Neskaupstaðar. Hann sagði nefnilega satt og það er vitaskuld ekki hægt að ætlast bara til þess og finnast það sjálfsagður hlutir.
Mikið ógeðslega er þetta ósanngjarnt.