
Nei andskotinn! Eru kennararnir ađ skrópa í skólann? Ég á ekki orđ!
Ţegar ég var í grunnskóla var bannađ ađ skrópa og ţeir örfáu sem ţađ gerđu voru fćrđir fyrir skólastjóra, foreldrar ţeirra kallađir á teppiđ og skrópararnir álitnir letingjar, slugsar og sleđar sem ólíklegt var taliđ ađ nokkuđ lćgi fyrir í framtíđinni annađ en auđnu- og atvinnuleysi. En nú eru kennararnir sumsé farnir ađ skrópa.
Kennarar eru fyrirmyndir barnanna okkar, ţví verđur ekki litiđ framhjá og í flestum tilfellum eyđa kennarar meiri tíma međ börnunum en foreldrar ţeirra. Ţeirra ábyrgđ er ţví mikil og í raun óţolandi ađ ţeir skuli kenna börnunum okkar ósiđi eins og skróp og óvirđingu gagnvart landslögum.
Hvađ er nćst á dagskrá hjá kennurum? Ćtla ţeir ađ stela húfunni af menntamálaráđherra? Vera í boltaleik inni í kennslustofunum? Reykja á skólalóđinni?
Ef til vill er fjarvera ţessara blessuđu kennara börnunum okkar bara fyrir bestu.
Jćja, ţá er ekki búiđ ađ velja ţrjúţúsundustu fréttina.
Ritstjórn - utan Kaktuzar og Herberts, sem voru vant viđ látnir - hittist á heimili Enters á laugardagskvöldiđ til ađ dćma í keppninni. Í ljós kom ađ ritstjórnarmeđlimir voru ekki allskostar sammála um hver af u.ţ.b. 150 innsendum tillögum vćri best; ţó voru menn sammála um ađ frétt Dr. Zoidbergs vćri ósmekklegasta fréttin og var hún fordćmd einróma.
Enter bauđ loks upp funheitt toddí til ađ skerpa huga fundarmanna, og var í framhaldinu ákveđiđ ađ senda hvít reykmerki til merkis um ađ 3000. fréttin hefđi veriđ valin.
Vakthafandi slökkviliđsstjóri reyndist ekki hafa skođun á innsendum fréttum.