
Nei andskotinn! Eru kennararnir að skrópa í skólann? Ég á ekki orð!
Þegar ég var í grunnskóla var bannað að skrópa og þeir örfáu sem það gerðu voru færðir fyrir skólastjóra, foreldrar þeirra kallaðir á teppið og skrópararnir álitnir letingjar, slugsar og sleðar sem ólíklegt var talið að nokkuð lægi fyrir í framtíðinni annað en auðnu- og atvinnuleysi. En nú eru kennararnir sumsé farnir að skrópa.
Kennarar eru fyrirmyndir barnanna okkar, því verður ekki litið framhjá og í flestum tilfellum eyða kennarar meiri tíma með börnunum en foreldrar þeirra. Þeirra ábyrgð er því mikil og í raun óþolandi að þeir skuli kenna börnunum okkar ósiði eins og skróp og óvirðingu gagnvart landslögum.
Hvað er næst á dagskrá hjá kennurum? Ætla þeir að stela húfunni af menntamálaráðherra? Vera í boltaleik inni í kennslustofunum? Reykja á skólalóðinni?
Ef til vill er fjarvera þessara blessuðu kennara börnunum okkar bara fyrir bestu.
Hvurn gauðrifinn grefilinn á það eiginlega að þýða að taka blásaklausar, rótfastar og reykvískar götur og kynskipta þeim með offorsi og glannagangi, rétt sisvona?
Bara af því að það þarf að kenna þær við einhverjar öllum gleymdar píur, sem ekki ösnuðust til að brosa til réttra borgarskipulagsfræðinga meðan færi gafst á öldinni sem leið.
Maður hefði haldið að það væri feykinóg af álfkonuhvörfum og gvendargeislum sem enginn ann og enga eiga sögu, sem geta gengist undir slíkt ofbeldi og ofboð, möglunarlaust.
Ég meina það.
Fari það í sútuð sokkaplögg af sjömilljón sædjöflum! Hvaða vansvefta vitfirringi dettur í hug að skipta um nafn á sjálfri Skúlagötunni?
Það er ekki eins og hún sé nefnd í höfuð Skúla rafvirkja. Hún liggur þarna til heiðurs sjálfum Skúla Magnússyni, landfógeta. Stolt og fögur. Þrungin sögu og menningu í hverri gangstéttarörðu. Þar gnæfir frímúrarahöllin yfir nágrenninu og glitrar eins og gimsteinn í kornflögupakka.
Og talandi um það. Hvar eru fjandans frímúrararnir? Ætla þeir bara að láta það yfir sig ganga að fara í skikkjurnar sínar og spandexið og úða í sig kindaheilum og hlaupböngsum við eitthvert bévítans kynjafnað Bríetartún, eins og ekkert hafi í skorist?
Ætlar virkilega hvert einasta karlmenni með bein í nefi að skríða skjálfandi undir næsta pilsfald meðan frávita femínistafellibylir leggja borgina, sögu hennar og sæmd í rúst og auðn.
Svei því alla daga!
Ég væri til í að hitta froðusnakkinn og landeyðuna sem lét sér þetta í sinn froðufyllta, rétthugsandi koll koma og kynjafna duglega um viðkomandi.