
Nei andskotinn! Eru kennararnir að skrópa í skólann? Ég á ekki orð!
Þegar ég var í grunnskóla var bannað að skrópa og þeir örfáu sem það gerðu voru færðir fyrir skólastjóra, foreldrar þeirra kallaðir á teppið og skrópararnir álitnir letingjar, slugsar og sleðar sem ólíklegt var talið að nokkuð lægi fyrir í framtíðinni annað en auðnu- og atvinnuleysi. En nú eru kennararnir sumsé farnir að skrópa.
Kennarar eru fyrirmyndir barnanna okkar, því verður ekki litið framhjá og í flestum tilfellum eyða kennarar meiri tíma með börnunum en foreldrar þeirra. Þeirra ábyrgð er því mikil og í raun óþolandi að þeir skuli kenna börnunum okkar ósiði eins og skróp og óvirðingu gagnvart landslögum.
Hvað er næst á dagskrá hjá kennurum? Ætla þeir að stela húfunni af menntamálaráðherra? Vera í boltaleik inni í kennslustofunum? Reykja á skólalóðinni?
Ef til vill er fjarvera þessara blessuðu kennara börnunum okkar bara fyrir bestu.
Elskulegu landsmenn.
Það er mér mikill heiður að tilkynna að næstkomandi mánudag mun Baggalútur stíga sín fyrstu skref í íslensku útvarpi. Nánar tilekið á hinni alþýðlegu Rás 2, sem er léttlyndari armur hljóðvarpsveldis íslenska ríkisins.
Nú á tímum uggvænlegrar samþjöppunar á fjölmiðlamarkaði er ekki seinna vænna en að þeir tveir óháðu fjölmiðlar sem enn þrífast hér á landi, RÚV og Baggalútur taki þannig höndum saman til að skapa sannleikanum þolanleg lífsskilyrði.
Tilraunaútsendingar Baggalúts hefjast mánudaginn 2. febrúar, laust eftir klukkan fimm, síðdegis.
Góðar stundir.