Lesbók04.11.04 — Númi Fannsker

Nú vilja menn að blessaður borgarstjórinn segi af sér. Æi. Hættiði nú! Þórólfur Árnason er flinkasti stjórnandinn í bænum og ljómandi góður náungi.

Hvurslags sótgrenjandi þvæla er það að halda því fram að manninum sé ekki sætt á stóli borgarstjóra? Látið ekki svona! Þó hann hafi gert það sem yfirboðarar hans sögðu honum að gera í starfi fyrir einkafyrirtæki úti í bæ fyrir 10 árum síðan.

Þó hann hafi skrifað fundargerðir, m.ö.o. sinnt ritarastörfum, fyrir hina sönnu glæpamenn í þessu máli - hvað með það? Eigum við að afþakka framúrskarandi hæfileika og starfskrafta Þórólfs Árnasonar af því að hann er pólitíkus sem hefur einhverntímann á ævinni tekið þátt í vafasömu athæfi? Ég er ansi hræddur um að ef það væri reglan færi að hitna undir ansi mörgum bossum - og ansi feitum.

 
Kaktuz — Saga
 
Kaktuz — Sálmur
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Fannar Númason Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
        1, 2, 3 ... , 180, 181, 182