Hvert er eiginlega verið að flytja Hringbrautina? Upp á Akranes?
Hvenær á þessum demónísku framkvæmdum eiginlega að ljúka? Þessir menn eru búnir að þjösnast þarna í Vatnsmýrinni á þessum daunspúandi traktorum sínum frá því í sumar án nokkurs sýnilegs árangurs. Jú, þeim hefur að vísu auðnast að tæta sundur nokkur andahreiður og moka nokkrar mjög flottar holur – og svo auðvitað að þrengja Hringbrautina. Bra-djöfuls-vó!
Hvernig væri nú að upphysja og aðhneppa brókum hvers annars og þurrka smurolíuna af púströrunum. Mér er nokk sama milli hvaða flöskustúta þið troðið þessum mislæga æðahnút ykkar. Drífið þetta bara af!
Í það minnsta áður en flugbílar komast hér í almenna notkun og rífa þarf allt klabbið til að stækka flugvöllinn.
---
Og annað! Var alveg bráðnauðsynlegt að ráðast í aðdyttingar og krúsídúllukantskurð í Suðurgötunni svona rétt á meðan? Bara rétt til að tryggja að aðeins Vesturbæingar með aðgang að svifdreka eða neðanjarðarlest komist leiðar sinnar.
Fimbulapar.