Lesbók24.05.02 — Númi Fannsker

Þegar þessi orð eru rituð, daginn fyrir kosningar til borgarstjórnar í Reykjavík, virðist ekkert geta stöðvað hinn frelsandi engil, elskulega móður okkar, dóttur, systur, ömmu og langömmu; frelsisgyðjuna sem reif okkur laus úr fjötrum íhaldsins; náttúruunnandann, laxveiðimanninn, séníið, borgarstjórann - Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur! Sigurgangan er í algleymingi og almúginn sem í tíð kúgarans lapti hér dauðann úr þeirri leku skel sem íhaldið rétti honum, gengur nú mettur á sál og líkama, beinn í baki - hnarreistur - mót þeirri paradís sem Reykjavík er orðin og verður meðan R-listinn ,samfélag heilagra, situr á valdastólum borgarinnar.

Þeir menn eru til sem þykjast betri en Ingibjörg. Þeir þykjast gáfaðri, meiri mannvinir, hæfileikaríkari, heppnari, skynsamari en sjálf Sólargyðjan - Sólrúnin. Ég fullyrði og ítreka af öllu mínu hjarta að slíkur maður (og þvísíður kona) er ekki til. Fyrirfinnst ekki í hinum jarðneska heimi, ef til vill á fjarlægri stjörnu ellegar meðal engla himnaríkis - en alls ekki í Reykjavík. D-listi, listi hnignunar og ringulreiðar, fjármálasukks og spillingar, eiginhagsmuna og framapots á ekkert erindi lengur við Reykvíkinga. Þeir hafa bragðað á sætum hunangsdrykk Reykjavíkurlistans og hafna því súra ediki sem sjálfstæðisflokkurinn ber þeim á borð í sprungnum, úrkvörnuðum, hriplekum ausum lyginnar.

Ég er fullur af gleði, ölvaður af sigurmiði þeim sem hjarta mitt dælir nú um æðar mínar. Ölreifur af þeim vessum framfara og mannúðar sem R-listinn eys yfir Reykvíkinga. Hreifur af víni sannleikans, sem Ingibjörg og lærisveinar hennar veita íbúum höfuðborgarinnar í hinni stóru altarisgöngu sem kosningabaráttan er. Ég er mettur af oblátu skynseminnar - líkama engilsins við tjörnina.

X-R!

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Spesi — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
     1, 2, 3 ... 180, 181, 182