Lesbók01.11.04 — Enter

Þar höfum við það. Á áratug tókst hinni heilögu þrenningu að snuða þjóðina um sexoghálfan milljarð, varlega áætlaðan. Guðmávita hvursu marga varlega áætlaða sexoghálfa milljarði þeir höfðu af okkur fyrir það - fyrir daga glanna­skaps í fax­með­höndlun og sofanda­háttar í forstýrðri glæpamennskunni.

Fúlmenni.

Ekki nóg með að þessi olíubornu siðblindildi hafi þurrmjólkað okkur og svívirt heldur tókst þessum hlandbrunnu iljaþykkildum á sama tíma, á einhvern óskiljanlegan hátt, að narra þjóðina út í frostið og hríðina - og láta hana dæla sjálfa!

Kúkalabbar.

Ekki létu þeir staðar numið þar. Nei. Þeim nægja ekki peningarnir okkar. Nei. Þeim nægja ekki bláfrystar hendurnar krepptar um blóði drifnar dælurnar. Nei. Þeir þurftu líka að klína kartöflusalati á pylsurnar okkar!

Undirmálsskítseiði.

Tvær refsingar þykja mér tilhlýðilegar. Annars vegar opinber húðstrýking á Arnarhóli með frjálsri aðferð þar sem almenningi gefst kostur á að kaghýða stjórnir félaganna, forstýrlinga og feitustu hluthafa, velta þeim upp úr smurolíu og tork og hóprúlla níðingunum fram af hafnarbakka að eigin vali.

Hins vegar - flutningur á starfsemi grunnskóla undir eitt sameinað íslenskt olíufélag - með höfuðstöðvar á Bolungavík.

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Dagbók
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, 4 ... 180, 181, 182