Lesbók25.10.04 — Enter

Þessi hringtorg – þessi íslensku hringtorg, hvað er með þau?

Nýlega keyrði ég fjórbreiða Reykjanesbraut – og kunni því vel. Þar sem ég rann þar yfir, sæll og glaður, varð mér litið út á hraunbreiðuna – og viti menn, í óbyggðunum miðjum, úr tengslum við allt og Allah höfðu menn reist ekki eitt heldur tvö skínandi fín hringtorg. Nei mikið helvítis helvíti, hugsaði ég.

Og þetta er aldeilis ekkert einsdæmi. Við hverjar einustu smáskitnu gatnaframkvæmdir hérlendis sjá menn sig knúna til að hola niður í það minnsta einu slíku – án nokkurs sýnilegs tilgangs.

Hvaðan sprettur eiginlega þessi öfugyggða hringavitleysa? Er þetta íslensk uppfundning og þar af leiðandi sérstakt metnaðarmál Vegagerðarinnar að Ísland verði stærsta hring-ekja heims? Eða eru það ef til vill óprúttnir íbúar annarra lífstjarna sem laumast að næturlagi til að rista torkennilega hringi og tákn í nýlagt og rjúkandi malbikið?

Mér er spurn.

 
Kaktuz — Saga
 
Kaktuz — Sálmur
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Fannar Númason Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
        1, 2, 3 ... , 180, 181, 182