Lesbók24.05.02 — Enter

Kćru Reykvíkingar.

Ég hef ekki sofiđ vel síđustu daga, síđustu vikur. Svei mér ef ég hef yfirleitt náđ djúpsvefni ţađ sem af er Maí. Nú er ég fullfrískur mađur, annálađur fyrir andlegt jafnvćgi og gefinn fyrir hvíld. Ţó ligg ég ţvalur af svita, nótt eftir nótt, gnísti tönnum, bylti mér og kuđla saman sćngurfötum. Afhverju, hví? Hvernig stendur á ţví?

Ţađ sem veldur mér vökum er nagandi kvíđi. Ótti. Ég er á skömmum tíma orđin tifandi taugahrúga, skelfingu lostin. Ţví, mínir elskanlegu, ég er svo afar heitt og hjartanlega, innilega ofsahrćddur um ađ sjálfstćđismenn geri enn og aftur í ţéttreyrđa buxnastrengi sína - og tapi kosningunum. Já, ég hef ţađ á tilfinningunni ađ nćsta laugardag setji ég krossmark mitt viđ örendan her.

Alla mína stormasömu tíđ hef ég hakađ af alúđ og umhyggju viđ bókstafinn D, hvort sem ţađ er í kosningum til ríkis eđa borgar. Ţađ stafar ekki eingöngu af heiladođa, hugsanavillu og kreddufestu, eins og svo oft vill brenna viđ - heldur hef ég einlćga og óbilandi trú á stefnuskrá flokksins, sem ég hef í hávegum, ćtíđ viđ höndina og blađa oft í mér til hughreystingar og geđsvölunar.

En nú er vođinn vís. Í hvert skipti sem ég legg aftur augun birtist mér tiltennt og strjálhćrđ ásýnd. Er ţar kominn borgarstjóri okkar, glottandi, skríkjandi; dansandi um í krampakenndum hláturflogum. Hún ţrumir yfir óförum okkar, sigurviss - og međ réttu. Hversu oft hef ég ekki mátt líta borgarstjóraefni okkar niđurlćgt undanfariđ, snuprađa eymdarsýn, hćdda af ţessari óbilandi refsinorn.

Já, Björn. Hvern órađi svosum fyrir ađ ţessi geđugi, hjartahreini sómadrengur yrđi tekin ţessum heljargreipum; fćrđur í kaf í pólitískum drullupollum, undinn eins og morkin gólftuska og honum slengt í gólfiđ, sigruđum, brotnum. En mađur spyr. Var hann dćmdur frá upphafi? Var hann vandanum vaxinn? Er hér á ferđ enn eitt dćmiđ um ofverndađa davíđsdúkku, hjarđeđlisfrćđilegt viđundur sem villist og veslast upp um leiđ og leiđtoginn er úr augsýn. Ég grćt ef ég hugsa til ţess hvernig ţessum sakleysingja var att inn á leikvanginn móti vćgđarlausri Sólrúninni. Ţarna stóđ hann varnarlaus, nakinn - međ duglitla trúđa sér ađ baki; konur og börn.

Var ekki hćgt ađ gera betur? Er virkilega enginn í hópi allra ţeirra ţúsunda sem hér á landi kjósa sér ţá fögru hugsýn frjálshyggju og framfara, sem eitthvađ getur? Erum viđ, sem ekki viljum rauđa sól yfir reykvískri grund, ţá eftir allt ekkert nema spenasogandi brjóstmylkingar, taugaveikar rollur, maurar - bakteríukenndir sníklar á holdi foringjans?

Á fćtur! Á fćtur segi ég og kastiđ snuđinu bévítans lyddurnar ykkar.

Ţađ er grábölvađ og tártakandi ađ horfa á eftir borginni, enn eina ferđina, í hendur rauđsokkum og trúleysingjum. En ţyngra vegur ţó á sál minni ađ sjá hiđ mikla vígi sjálfstćđisins veslast upp og grotna innanfrá, ţar sem óöruggar og grátgjarnar smásálir hjúfra sig saman, hrćddar og beygđar.

Svei mér ţá. Ég held ég ţoli tćpast meira. Ef svo fer sem horfir heiti ég ţví ađ strax á mánudag mun ég fćgja fálkann sem stendur í stofu minni, dusta rykiđ af blástakknum mínum góđa og storma niđur í Valhöll. Ég mun ekki sjá á eftir borginni í fjórđa skiptiđ - ţó ég viti vel ađ ţađ ţýđi ekki nema eitt. Ég mun neyđast til ađ láta undan kröfum um ađ skipa fyrsta sćti D-listans til borgarstjórnarkosninga í Reykjavík.

x-D

 
Enter — Sálmur
 
Myglar — Sálmur
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Enter — Sálmur
 
Kaktuz — Forystugrein
 
Kaktuz — Sálmur
 
Kaktuz — Sálmur
 
Enter — Leikrit
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
        1, 2, 3 ... 179, 180, 181, 182