Lesbók02.10.04 — Enter

Baggalútur hefur nú hætt öllum afskiptum af útvarpsrekstri. Í bili að minnsta kosti.

Meðan útsendarar Baggalúts voru við störf í Efstaleiti komust þeir ekki hjá því að taka eftir bágri fjárhagsstöðu RÚV. Einungis var boðið upp á kalt vatn og hrökkbrauð í mötuneyti, tækjabúnaður var allur frá uppgangsárum stofnunarinnar á 7. áratug síðustu aldar, fréttamenn sjónvarps gengu um ganga í fínu jökkunum sínum við slitnar joggingbuxur. Útvarpsmenn voru sjaldnast klæddir.

Ákveðið var á ritstjórnarfundi að leita leiða til að styrkja þessa velgjörðamenn okkar og var að lokum fallist á að hljóðritun stuðningslags væri rétta leiðin í þessum efnum, sem öðrum.

Hið ástsæla lag Hjálpum þeim var valið, einkum vegna smekklegrar útsetningar og frábærs árangurs þess við svipað tækifæri fyrir 18 árum síðan. Eru það fyrrum starfsmenn Rásar tvö sem flytja ásamt hinum óviðjafnanlega Tony Ztarblaster og óþekktum tenór af Norðurlandi.

Smellið hér til að hlýða á þennan svanasöng útvarps Baggalúts.

 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Sálmur
 
        1, 2, 3 ... 180, 181, 182