Páskalagi Baggalúts hefur verið feykivel tekið. Nú þegar hafa þúsundir lesenda Baggalúts sótt lagið á vefinn og fjölmargir hafa pantað diskinn í póstkröfu, víðsvegar að úr heiminum.
Tony Ztarblaster og félagar hans í Thundervolt eru umsetnir hvert sem þeir fara og þurfti t.a.m. að rýma Bláa lónið í morgun þegar sveitin hugðist baða sig þar.
Baggalútur þakkar að sjálfsögðu þessar hlýju móttökur og bendir á að enn er hægt að tryggja sér eintak af laginu með því að smella hér - meðan birgðir endast.