Lesbók24.03.04 — Enter

Þá er hvert íslenskt nef klesst ofan í játningar pöru- og ólánspiltanna þriggja sem grunaðir eru um að hafa gatað Litháann Vaidas og sturtað honum út í sjó - og gott ef ekki hreinlega drepið mannlufsuna.

Falleg lesning það.

Nú stendur mér allslétt á sama hvaða blaðurfíkill smokraði þessu ógæfuklámi upp eftir bakrauf þeirra DV manna.

Eins gef ég ekki hlandblandið hrossatað í helvíti fyrir frelsisheltandi meiningar yfirvalda um að slíkt og annað eins megi ekki birta. Geti yfirvöld ekki haft stjórn á eigin ljósritunarkosti ættu þau að halda kjafti.

Það sem á hinn bógin sló mig og stakk - um það bil sem ég var að svolgra í mig nákvæma innihaldslýsingu meltingarfæra ókunnugs Litháa - var að mér kemur þetta ekkert við.

Hvað í kekkjóttu kölnarvatni andskotans kemur það mér við hvar og hvernig í smæstu atriðum einhverjir eiturmettir glæpaskunkar murka líftóruna hver úr öðrum? Ekki er ég að fara að apa þetta eftir þeim.

Mér þykir smáatriðarunk og klígjuhvetjandi samfélagsgröftur af þessu tagi hreinn og klár óþarfi - og þrátt fyrir að ekki hvarfli að mér að banna hann vil ég minna á að það er fólk í vinnu við að smúla þessi ömurðarræsi mannlífsins og halda þeim frá okkur hreinu börnunum.

Nóg er nú samt.

 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
        1, 2, 3, ... 180, 181, 182