Skýrr hefur af stakri góðmennsku, framsýni og ást á sannleikanum skotið skjólshúsi yfir vefsvæði Baggalúts.
Hingað til hefur vefurinn verið hýstur á erlendri grund, í afskekktum píramíða í Mið-Ameríku. Sá staður er þó ekki lengur talinn öruggur, enda komust Síonistar, frímúrarar og aðrir óvildarmenn Baggalúts á snoðir um hann í síðustu viku og náðu að lama vefþjóna og gleypa töluvert magn skjala og kísilflagna.
Að sögn Enters, deildarstjóra upplýsinga- og áróðursdeildar Baggalúts markar flutningur vefsins heim "...nokkur tímamót í sögu Baggalúts og ekki síður Skýrr, sem með þessu gerir sannleiksþyrstum netnotendum kleift að njóta sannleikans á fljótari, ódýrari og öruggari hátt en áður hefur tíðkast".
Njótið heil!