Lesbók19.02.04 — Enter

Þeir nenna þessu víst ekki lengur blessaðir mennirnir.

Skiljanlega.

Búnir að hokra þetta á þessu rokrassaða Reykjanesi í 50 ár - og hvað hafa margir reynt að taka landið? Enginn.

Það er ekki einu sinni eins og hingað hafi villst einn og einn rússneskur kafbátur, kúbversk trilla eða kínverskt flöskuskeyti.

Ekkert.

Hvaða púður er í því að húka í herkví uppi á Íslandi og fá ekki einu sinni að skjóta rjúpur?

Og nú sumsé eru þeir að fara, blessaðir. Lítið við því að gera annað en bara að vinna í að plata nýja vitleysinga inn fyrir grindverkið.

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Spesi — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
     1, 2, 3 ... 180, 181, 182