Hvenær ætlar einhver góður maður að taka þennan Sharon upp á eyrunum?
Á bara að láta það viðgangast að þessi hlaunagleiði ístrubelgur múri þessa síspringandi palestínuræfla inni svo hann geti í hægindum dritað þá niður með nýja fína kábojadótinu sínu - nú eða svelt þá til hlýðni þegar honum sýnist svo.
Fjandinn og feður hans allir, þetta járnbenta steypuflykki hans á að verða átta metrar á hæð - það er meira en sjálfastur yfirarkitekt Kínamúrsins getur státað af. Og 700 kílómetrar á lengd!
SJÖHUNDRUÐÞÚSUND METRAR!!!
Þetta er náttúrulega svoddan gallgapandi geðsýki að það tekur engu tali.
Vill einhver taka þessa hvíthærðu klóakkæfu og koma fyrir hana vitinu - áður en ég fer sjálfur þarna niðreftir með hrísvöndinn hans afa míns og girði endanlega niður um þessa ófreskju.