Þá hafa hinir dvergvöxnu frændur okkar í suðaustri gengið til kosninga.
Og sjá, vilji færeysku þjóðarinnar er skýr.
Ekkert nema blóðug bylting kemur nú til greina. Bylting þar sem hálstjargaðri nikótínnöðrunni henni Margréti Þórhildi er steypt af stóli og hún fest upp líkt og það vindbarða skerpiket sem kagbeygðir þrælar hennar hafa mátt leggja sér til munns - meðan danskar krúnumellur og jóskir ölbelgir hafa makað krók og kjaft með afurðum þeirra og uppskeru.
Lifi Fólkaflokkurinn, lifi frelsið - og dauði yfir danska heimsveldinu.