Lesbók09.01.04 — Númi Fannsker

Alveg er það nú dæmigert fyrir þetta snobbaða kommúnistapakk sem allt þykist vita, að fara að fetta fingur út í aðferðarfræði hinnar ævinlegu fræðasögu. Þekkir þetta pakk yfir höfuð lögmál þeirrar bókmenntagreinar? Hefur sósíalmenntasnobbselítan - sem ekkert frjálst má sjá án þess að vilja hneppa það í bönd - hefur hún yfirhöfuð kynnt sér þá aðferðarfræði sem ævinlega fræðasagan byggir á?

Hefur þetta fólk t.d. kynnt sér verk Brenefors hins norska? Nú eða Fjalldahl - sem segja má að sé frumkvöðull hinnar skandinavísku, ævinlegu fræðasögu. Greinilega ekki!

Er þessu fólki ekkert heilagt? Hvað á Hannes sosum að gera? Ganga fyrir björg eins og mannætuhákarlarnir í fjölmiðlunum vildu að vesalings Árni Johnsen gerði á sínum tíma? Og átti Hannes eftilvill að ganga þvert á lögmál hinnar ævinlegu fræðasögu? Átti hann eftilvill að skrifa leiðinlega bók?!

Þetta fólk er náttúrulega ekki alminlegt.

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Spesi — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
     1, 2, 3 ... 180, 181, 182