Lesbók05.01.04 — Númi Fannsker

Á nú endalaust að níðast á blessuðum farandverkamönnunum við Káranhjúka sem þar híma í eymd og volæði, rennblautir í fæturna, sundurkramdir á sál og líkama - illa til reika?!

Hvað gerir einmana farandverkamaður á jólum - aleinn og gegnkaldur á sprengfreðnum hjara veraldar? Ekki fær hann að berja augum strípimeyjar eða drýgja dulítið hór með tápmiklum meyjum austurlenskum - onei. Og hann fær ekki lengur að ylja sér við glóð af sígarettu og dulítið tár af viskuvatni, hann má ekki einu sinni baka litla hassskúffuköku á afmælisdaginn sinn til að gleðja vinnufélagana! Svei!

Við borgum þessum greyjum lúsarlaun - langt undir lágmarkslaunum og kroppum svo þær fáu krónur sem þeir þó fá af þeim fyrir að vilja gera sér glaðan dag í helvíti Kárahnjúka!

Já svei! Þótt þetta séu skynlitlar skepnur er óþarfi að níðast á þeim til að fullnægja sínum sjúklegu kenndum!

Ég er hræddur um að hljóð heyrðist úr horni ef vinir okkar í húsdýragarðinum hættu að fóðra svínin yfir háveturinn!

Iss!

 
Kaktuz — Saga
 
Kaktuz — Sálmur
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Fannar Númason Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Sálmur
 
Enter — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
        1, 2, 3 ... , 180, 181, 182