Lesbók02.01.04 — Enter

Vill einhver segja mér hví í hlandbrunnu helvíti ónytjungurinn hann Hrafn Gunnlaugsson fær að búa til kvikmyndir?

Þetta ömurðarmetta drasl hans sem sýnt var í ríkissjónvarpinu á Nýársdag sló að ég held öllum þeim hroða við sem íslenskir kvikmyndagerðarmenn hafa gegnum tíðina klastrað upp og narrað okkur sakleysingjana til að góna á.

Ég þurfti á meðan þessi seigfljótandi vítispynd gekk yfir að halda fyrir vit mér til þess hreinlega að selja ekki upp yfir sjónvarpsskjáinn.

Hverskonar mannvonska og náungahatur ræður því að slík fimbuldella rati inn á friðsæl heimili á nýju ári? Hvað höfum við gert til að verðskulda slíka niðurlægingu andans og svíðingslega raðnauðgun listagyðjunnar?

Skammastu þín bara Krummatetur! Réttast væri að hýða þig duglega og neyða þig til horfa á þennan daunilla aftankreisting þinn í leiðinni.

Vill einhver gjöra svo vel að loka þennan óforskammaða manndrýsil af og taka af honum myndavélina.

Og í hamingjunnar bænum - hættið að láta hann hafa peninga!

 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Sálmur
 
Spesi — Forystugrein
 
Númi Fannsker — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
Enter — Forystugrein
 
     1, 2, 3 ... 180, 181, 182