Gagnrýni – Enter

Þá er það frá, búið að farga hringhelvítinu og koma Fróða og öllum hinum grislingunum heilu og höldnu aftur heim.

Ég tek ofan fyrir kiðfætta átfíklinum Peter Jackson og hans hyski öllu - bravó - megið þið hljóta allt það verðlaunaglingur sem völ er á fyrir þetta afrek.

Þeir regnmenn og gumpar sem hórmangarar Hollívúddborgar tefla fram mega sín lítils þetta árið. Sama hvað þeir sökkva stóru skipi eða teikna stórar risaeðlur - allt bliknar hjá þessu stórvirki.

Fyrir utan það að hómóerótíkin milli Hobbitana hugumprúðu væri á stundum pínleg og Sarúman ræflinum verði ekki stútað fyrr en á DVD - er harla lítið hægt agnúast út í þennan lokakafla. Húrra. Húrra. Húrra. Húrra.

Stórbrotið hráefni. Góð mynd. Frábært bíó.

Lesbók frá fyrri tíð

Hverjum datt nú í hug að taka tilboði ítalska verktakafyrirtækisins Impregilo? Flögraði ekki að mönnum að slíkir kónar yrðu til vandræða? Fyrirtæki sem ítrekað hefur orðið uppvíst að mútum og vafasömum viðskiptaháttum!
Voru menn hissa þegar Ítalirnir tróðu starfsmönnum sínum inn í vasklausar kytrur þar sem þeir máttu dúsa í fjölþjóðlegri táfýlu hver um annan þveran? Nú eða þegar þeir beita öllum ráðum til að sleppa við að greiða þau laun sem þeim ber?

Grunaði fjandakornið engan að það væri ástæða fyrir því að ítalska verktakafyrirtækið Impregilo var með langlægsta tilboðið?!

Er nú ekki kominn tími til að stjórnvöld grípi hér í tauma og Davíð sýni þessum glæpasnúðum hvar hann keypti ölið?

Númi Fannsker 1/10/03
Spesi – Gagnrýni
 
Enter – Gagnrýni
 
Spesi – Gagnrýni
 
Númi Fannsker – Gagnrýni
 
Spesi – Gagnrýni
 
Enter – Gagnrýni
 
Spesi – Gagnrýni
 
Enter – Gagnrýni
 
Enter – Gagnrýni
 
Númi Fannsker – Gagnrýni
 
Enter – Gagnrýni
 
Dr. Herbert – Gagnrýni
 
Enter – Gagnrýni
 
Spesi – Gagnrýni
 
Dr. Herbert – Gagnrýni
 
Númi Fannsker – Gagnrýni
 
Enter – Gagnrýni
 
Spesi – Gagnrýni
 
Enter – Gagnrýni
 
Númi Fannsker – Gagnrýni
 
        1, 2, 3, 4, 5  
Þjóðbók
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA